Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Sveindís Jane og félagar vörðu titilinn með öruggum sigri á Freiburg
Mynd af Wolfsburg eftir að liðið tryggði sér titilinn í fyrra.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 18. maí 2023 kl. 17:33

Sveindís Jane og félagar vörðu titilinn með öruggum sigri á Freiburg

Sveindís Jane Jónsdóttir og lið hennar, Wolfsburg, var rétt í þessu að tryggja sér þýska bikarmeistaratitilinn annað árið í röð.

Wolfsburg komst yfir á 4. mínútu en Freiburg jafnaði skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks (4'). Sveindís var í byrjunarliði í dag en henni var skipt út af í hálfleik í stöðunni 1:1.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Wolfsburg gerði út um leikinn í seinni hálfleik með þremur mörkum (57' 84' og 90') án þess að andstæðingarnir næðu að svara. Lokatölur því 4:1 fyrir bikarmeisturum Wolfsburg.

Sveindís Jane átti stóran þátt í sigri Wolfsburg í undanúrslitum en hún lék aðeins fyrri hálfleik í dag.